Orkuverið Jörð
Orkuverið Jörð - Reykjanesvirkjun
Orkuverið Jörð
Hönnun og hugmyndafræði sýningarinnar gengur út frá stóra hvelli og upphafi sólkerfisins allt aftur til okkar tíma. Farið er meðal annars í gegnum uppfinningar sem breytt hafa lífi okkar til þess vegar sem það er í dag en það ætti að vera okkur öllum ljóst hversu mikilvægur þáttur orkan er í lífi okkar. Fjallað er um mismunandi orkunýtingu á jörðinni og hvaða möguleika við höfum á orkunýtingu bæði hér heima á Íslandi sem og annars staðar í heiminum. Nokkur sýnishorn eru á staðnum en segja má að jarðvarmavirkjunin sjálf sé eitt það stærsta. Sýningin er að nokkrum hluta gagnvirk og geta gestir því tekið virkan þátt í henni. Á spjöldum og gagnvirkum skjám er að finna ógrynni upplýsinga um orku, plánetur og himingeiminn. Nokkur gagnvirk tæki er að finna á sýningunni þar á meðal jarðskjálftahermir þar sem sýningargestir geta upplifað raunverulega jarðskjálfta á mismunandi richterskala. Virkjunin stendur í hraunbreiðu á Reykjanestánni og náttúrperlurnar sem má finna í hraunfætinum eru magnaðar; Gunnuhver, Brú milli Heimsálfa, Stamparnir, Sýrfell, Rauðhólar o.s.frv.
Plánetu ratleikur um Reykjanesið.
Fyrir utan stöðvarhús virkjunarinnar, hálfgrafin í hrauninu er sólin staðsett en hinar plánetur sólkerfisins eru staðsettar víðsvegar um Reykjanesskagann í hlutfallslega réttri fjarlægð frá sólinni við Reykjanesvirkjun og þar af leiðandi er upplagt að fara í skemmtilegan ratleik um skagann í tengslum við plánetur sýningarinnar.
Opnunartími:
Frá 15. maí til 15 semptember er opið alla daga frá 12:00 - 16:00.
Frá og með 15. september til 15. maí er sýningin lokuð fyrir almennan rekstur en opið er fyrir hópa samkvæmt samkomulagi.
Vinsamlega hafið samband í síma 436 1000
Findu okkur á fecebook "power plant earth"


